Dr.Stefanía ber ekki vitið í þverpokum

Merkilegt hvernig fjölmiðlar velja sér álitsgjafa. Stefanía sem er gallharður sjálfstæðismaður er kölluð til þegar á að fjalla um stöðu annarra flokka.

Alltaf er hún á sömu skoðun sem er sú t.d. fyrir nokkru að Steingrími bæri að segja af sér.

Það er ekki nóg að vera með doktorsgráðu ef vitið fylgir ekki með.


mbl.is Beinist að Steingrími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn Geirs H. Haarde gaf loforðið

Ákaflega margir á bloggi og víðar bölva Jóhönnu og Steingrími vegna samninganna. Ég er ekki tilbúinn að skrifa upp á slíkt. Ríkisstjórn Geirs H. Haarde gaf loforð um að Bretar og Hollendingar fengju sitt greitt.

Ef einhverjir ættu að fá skömm í hattin væru það Geir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson sem bar ábyrgð í veikindum ÍSG.

Með þessu er ég ekki að klappa JS og SJS á bakið. Síður en svo. Ég eins og nánast allir Íslendingar á eftir að lesa samninginn og mér dugar ekki frásagnir mbl.is/Moggans, RÚV og vísis.is sem eru allar litaðar af pólitík.

Ef Ísland á ekki borga skv. lögum um innstæðutryggingar þá hefði ríkisstjórn Geirs H. Haarde ekki átt að gefa loforð um fullar greiðslur til Breta og Hollendinga.

Svo virðist sem sú ríkisstjórn hafi metið það svo að Íslandi bæri að greiða þessar skuldir.

Þess vegna er eiginlega fyndið að menn skuli hamra á þeim sem eru að gera sitt til að lágmarka skaðann og kalla þá landráðafólk og að eina markmið þeirra sé að koma landanum í skuldaánauð.

Ég held að ríkisstjórn Geirs hafi verið of fljót á sér með að gefa loforð um fullar greiðslur og þar með ríkisábyrgð á Icesave skuldunum. Trúlega var loforðið gefið undir mikilli pressu og vegna aðstæðna.

Mér finnst að við eigum einfaldega að ljúka þessu máli ef það er eins og kynnt hefur verið. En ég hef allan fyrirvara á þessari skoðun.


mbl.is Mikil áhætta ríkissjóðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Samkeppniseftirlitið ennþá i Öskjuhlíðinni?

Er Samkeppniseftirlitið ennþá í Öskjuhlíðinni? Kom það aldrei tilbaka? Þetta er eitt versta dæmi um samráð sem sést hefur um langa hríð.

Þegar heimsmarkaðsverð lækkar þá hækkar bensínverð á Íslandi. Þegar dollarinn lækkar gagnvart krónu þá hækkar verðið.

Þetta er hreinn og klár þjófnaður. Kæra til Samkeppniseftirlitsins mun líta dagins ljós eftir helgi.

 Ekkert af rökfræði olíufélaganna stenst skoðun.

 


mbl.is Öll olíufélögin búin að hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri stjórn fjármagnseigenda

Moðsuða var það fyrsta sem kom upp í hugann þegar ég sá hugmyndir ríkisstjórnarinnar. Viljayfirlýsingar stjórnarinnar eru komnar á þriðja hundraðið síðan hún komst til valda. Ekkert verður úr verki. Allt sem er að gerast er í bönkunum sjálfum og það er ákaflega dapurt fyrir þá hús/íbúðaeigendur sem standa verulega höllum fæti.

Þessi stjórn sem ég studdi er orðin verri en ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar og er þá langt til seilst í viðmiðunum. Kannski ég fari að kaupa Moggann aftur.

Öryrkjar og ellilífeyrisþegar eiga að halda áfram að lepja dauðann úr skel. Ellilífeyrisþegar eiga að bíða fram til 2013 eftir leiðréttingu. Þá ættu að verða kosningar og væntanlega verða auknar bætur þeirra komnar í framkvæmd rétt fyrir þær kosningar. Víxlverkun almannatrygginga og lífeyrissjóða eiga að koma til framkvæmda núna eða fljótlega. En þær hafa aðeins áhrif á þá sem geta unnið. Hinir sem eru svo ólánsamir að geta ekki unnið enda öryrkjar fá enga leiðréttingu eða auknar bætur.

Velferðarstjórnin er komin að fótum fram og nú er einfaldlega kominn tími á að haldnar verði nýjar kosningar. Sjálfur trúi ég því að kosningar verði áður en stjórnlagaþing hefur lokið störfum sínum þar sem mikið er í húfi fyrir stjórnina að freista þess að viðhalda meirihluta sínum.

Fjármagnseigendur stjórna þessari ríkisstjórn eins og öðrum undanfarna áratugi. Á því verður engin breyting nema kjarkur og vilji standi til að breyta því. Þessi ríkisstjórn hefur hvorugt.


mbl.is Miklar umbúðir - rýrt innihald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar óvanir persónukjöri

Lítil þátttaka kemur mér ekkert sérlega á óvart. Á undanförnum áratugum hafa einu möguleikar landans til að hafa áhrif í persónukjöri verið í gegnum prófkjör flokkanna.

Því er það augljóst að í kjörmálum eru Íslendingar dálitlir kjánar. Í góðri merkingu sagt. Það reynir mun meira á einstakling að velja annan einstakling á lista, hvað þá lista þar sem um jafnstórt mál er að ræða. Ábyrgð hvers einstaklings verður meiri og nálægri en í hefðbundnum kosningum eða í stóru máli eins og Icesave sem er í eðli sínu gjörólíkt og ekki samanburðarhæft hvað varðar þátttöku. Icesave málið snertir huglægt mun meira hvern einstakling hvern dag, hverja klukkustund, hverja mínútu en ný stjórnarskrá gerir. Það verður ekki fyrr en stjórnlagaþingið lýkur störfum eða meðan það starfar að fólk áttar sig betur á hver munurinn er á kosningu til stjórnlagaþings eða til Icesave.

Þingkosningar eða sveitastjórnarkosningar eru ekki samanburðarhæfar að mínu mati.

Ef eitthvað er samanburðarhæft þá er það þátttaka í mótmælum s.s. undirskriftasöfnunum, beinum mótmælum t.d. við þinghúsið og slíkt.

Ég tel gott ef a.m.k. 30.000 kjósa í dag. Slíkur fjöldi nægir til að vekja forsetann af værum svefni og því er þetta ágætis viðmið.

En fjölmiðlar og kannski sérstaklega RÚV virðast gera allt til að skemma fyrir með því að gera lítið úr þessu stóra máli.

Með því að taka þátt í dag var ég ekki aðeins að velja fólk. Ég var að velja beint lýðræði. Slíku hefur fólk kallað eftir og ég hef nýtt minn kosningarétt.


mbl.is 21% höfðu kosið kl. 17
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÓRG vill aðra atkvæðagreiðslu um Icesave

Á vísi.is er annað viðtal við Ólaf Ragnar en þar er hann í viðtali við Bloomberg og þar segir hann að þegar samningum verði lokið við Breta og Hollendinga og þingið hafi afgfreitt samninginn muni hann leggja þann samning fyrir þjóðina.

Svona eiga menn að tala.

Frétt vísis.is

"Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands vill að þjóðaratkvæðagreiðsla verði aftur um nýtt samkomulag í Icesave deilunni. Þetta kemur fram í viðtali við forsetann hjá Bloomberg fréttaveitunni.

„Það mikilvægasdta er að Bretar og Hollendingar hafa gert sér grein fyrir að afstaða þeirra í upphafi Icesave deilunnar hafi verið ósanngjörn. Þeir hafa nú breytt þeirri afstöðu," segir Ólafur.

Forsetinn segir hinsvegar að það sé spurning um hve langt sé hægt að ganga í að láta almenning að axla byrðirnir af föllnum einkabönkum.

Aðspurður nánar um Icesave segir forsetinn að nýr samningur verði fyrst að fara í gegnum Alþingi en almenningur eigi síðan að hafa síðasta orðið ef samningurinn sé metinn ósanngjarn.

Forsetinn var einnig spurður um samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Hann svaraði því til að Ísland gæti sagt bless við sjóðinn á næsta ári. Ísland hefði staðið sig mun betur í endurreisn efnahags síns en spáð hafði verið.

Bloomberg vildi vita um skoðanir forsetans á stöðunni á Írlandi og muninum á því landi og Íslandi hvað varðar eftirköst fjármálakreppunnar.

Ólafur segir að á Íslandi var bönkunum leyft að falla. Íslendingar pumuðu ekki peningum í þá til að halda þeim gangandi. Krónan hafi gert Íslendingum kleyft að fella gengið verulega, þannig að útflutningsgreinar landsins hafa blómstrað.

„Þess vegna er íslenska hagkerfið að koma út úr kreppunni fyrr en vænst var," segir Ólafur."


mbl.is Forsetinn: Ísland í betri stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Námamenn??

Í gegnum tíðina hafa námumenn aldrei verið kallaðir annað en námumenn. En nú bregður svo við að bæði mbl.is og visir.is eru farnir að kalla námumenn námamenn.

Er þetta rétt? Alls ekki. Íslensku hefur hrakað stórkostlega í fjölmiðlum. Þetta gæti verið rétt ef verið væri að tala um menn sem vinna í mörgum námum á nákvæmlega sama tíma. Náma um námu frá námu til námu. Menn um menn frá mönnum til manna.

Þess vegna er rétt að tala um námumenn.


mbl.is Björgun námamanna tefst enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttarfarsmál undir liðnum "Viðskipti"

Mogginn er að verða eins og lélegur brandari. Davíð þekkir ekki mun á réttarfari og viðskiptum.
mbl.is Lárus Welding yfirheyrður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borinn sökum vegna verndar? Því ekki bara einangrunarvist?

Ekki er mér kunnugt um þetta mál þ.e. Saga Capital að selja skuldabréf í Stím. samkvæmt hegningarlögum er sakborningur aðili sem er borinn sökum.

Því kemur mér það undarlega fyrir sjónir að Þorvaldur haldi því fram að hann njóti verndar réttarkerfisins sem sakborningur.

Er hann í hættu? Er þá ekki betra að hann fari í einangrun á Hrauninu þar sem hann fær fullkomna vernd?

Það sem menn voga sér að halda fram og fjölmiðlar lepja upp eins og Mogginn gerir núna.


mbl.is Fengu ekki nauðsynleg gögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og eflaust var stríðið í Írak löglegt

Og kannski var meira löglegt því eins og allir vita þá eru lögfræðingar, sem stétt í þessu landi haldnir kvalalosta sem lýsir sér í því að sál þeirra er á góðum prísum hjá andskotanum.

Bush græddi sjálfur á tá og fingri við að murka lífið úr saklausu fólki í Írak og Afganistan og gekk þar með í raðir þeirra sem fá góða prísa hjá andskotanum.

Eftirmæli Bush verða trúlega þau að þar hafi farið maður sem braut gegn mannkyni og hefði átt að fara fyrir stríðsglæpadómstól.


mbl.is Bush ver fyrri ákvarðanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Hafþór Baldvinsson

Höfundur

Hafþór Baldvinsson
Hafþór Baldvinsson
Áhugamaður um samfélög
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 9473

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband